Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 219. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 222  —  219. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vegagerð og umferð norður Strandir í Árneshrepp.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hver er áætlun um framkvæmdir og verklok á vel uppbyggðum vegi með bundnu slitlagi norður Strandir frá Brú að Hólmavík?
     2.      Hversu mikil umferð er um veginn norður Strandir úr Kaldrananeshreppi í Árneshrepp og hvernig hefur hún þróast sl. tíu ár, sundurliðað eftir mánuðum?
     3.      Hver er verkáætlun um uppbyggingu vegarins um Kaldrananeshrepp og Árneshrepp og hvenær verður uppbyggingu góðs malarvegar norður í Árneshrepp lokið?