Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 320. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 347  —  320. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um úttekt á áhrifum nýs launakerfis á launamun kynjanna.

Frá Drífu Snædal.



1.    Hvers vegna hefur yfirlýsingum í kjarasamningum opinberra starfsmanna við ríki og Reykjavíkurborg frá 1997 um úttekt á áhrifum nýs launakerfis á launamun karla og kvenna ekki verið fylgt eftir?
2.    Hvenær verður hafist handa við að greina áhrifin og hvernig verður það gert?