Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 341. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 377  —  341. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.

Frá Gunnari Birgissyni.



     1.      Hve mörg mál hefur úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála fengið til umfjöllunar frá gildistöku skipulags- og byggingarlaga 1. janúar 1998?
     2.      Hve mörg mál hefur úrskurðarnefndin afgreitt á sama tíma?
     3.      Hver er afgreiðslutími mála hjá úrskurðarnefndinni að meðaltali og hver á hann að vera samkvæmt lögum?
     4.      Hve margir starfa hjá nefndinni?