Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 363. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 403  —  363. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um eyrnasuð.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hve margir Íslendingar hafa greinst með eyrnasuð?
     2.      Hversu útbreitt má telja að eyrnasuð sé hér á landi?
     3.      Hvaða úrræði standa þessu fólki nú til boða?
     4.      Vinnur ráðherra að úrbótum fyrir fólk með eyrnasuð og ef svo er, hverjar eru þær?