Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 366. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 406  —  366. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Frá Árna R. Árnasyni.



     1.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja að D-álma við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja komist í gagnið eins og miðað var við með fjárveitingum á þessu ári?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja starfsemi heilsugæslustofnunarinnar eftir að heimilislæknar hafa horfið frá störfum við hana?