Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 380. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 433  —  380. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um mænuskaðaverkefni.

Frá Láru Margréti Ragnarsdóttur.



    Mun ráðherra tryggja að strax í upphafi næsta árs geti hafist starfsemi gagnabanka um mænuskaðaverkefnið sem Evrópuráðið hefur samþykkt að styðja stofnsetningu á og framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, Gro Harlem Brundtland, hefur mælt með að verði settur upp á Íslandi og þegar hefur verið áætlaður kostnaður fyrir?


Skriflegt svar óskast.