Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 358. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 463 —  358. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 14/1998, um Örnefnastofnun Íslands.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Val Árnason frá menntamálaráðuneyti.
    Með frumvarpinu er lagt til að stjórn Örnefnastofnunar verði lögð niður jafnframt því sem valdsvið og hlutverk forstöðumanns verður gert skýrara en í gildandi lögum.
    Ástæður þessara breytinga má rekja til nefndarálits nefndar á vegum fjármálaráðuneytisins um ábyrgð, valdsvið og stjórnunarumboð forstöðumanna frá október 2000. Þar kom fram að stjórnsýsluleg staða, hlutverk stjórna og staða forstöðumanna væri oft óskýr og af því leiddi að óljóst væri hver bæri ábyrgð á rekstri viðkomandi stofnunar. Því var lagt til í nefndarálitinu að stjórnum ríkisstofnana yrði fækkað og þær aðeins nýttar þar sem sérstök ástæða væri til að gera stjórn stofnunar sjálfstæðari en almennar reglur ríkisrekstrarins gæfu tilefni til.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Sigríður Jóhannesdóttir, Einar Már Sigurðarson, Kjartan Ólafsson og Kristinn H. Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 20. nóv. 2002.



Gunnar Birgisson,


form., frsm.


Ólafur Örn Haraldsson.


Sigríður Ingvarsdóttir.



Kolbrún Halldórsdóttir.


Arnbjörg Sveinsdóttir.