Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 434. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 586  —  434. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um flutningskostnað.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hvenær er áætlað að nefnd sú ljúki störfum sem vinnur að athugun á flutningskostnaði fyrirtækja og almennings á landsbyggðinni?
     2.      Hefur í störfum nefndarinnar verið lagt mat á hvernig flutningskostnaður hefur þróast á undanförnum árum?
     3.      Liggur fyrir hver hlutur þungaskatts er í flutningskostnaði við landflutninga og hefur vægi hans fyrir einstök svæði verið athugað sérstaklega?