Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 437. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 596  —  437. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 33 5. maí 2000, um veiðieftirlitsgjald, með síðari breytingum.

Frá sjávarútvegsnefnd.



1. gr.

    Í stað orðsins „fullvinnsluskipa“ í 1. málsl. 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: skipa sem hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðieftirlitsgjald var lagt fram á yfirstandandi þingi og afgreiddi nefndin einungis þær gjaldtökuhækkanir sem frumvarpið gerði ráð fyrir en felldi út úr frumvarpinu með breytingartillögu þá grein er varðaði rýmkaða greiðsluskyldu útgerða við veiðieftirlit og nú er flutt nokkuð breytt, þar sem ekki vannst tími til að ljúka vinnu við hana.
    Með frumvarpi þessu leggur nefndin til þá breytingu á lögunum að ekki aðeins útgerðir skipa sem fullvinna botnfiskafla um borð greiði fyrir eftirlit um borð í skipum sínum, heldur taki greiðsluskyldan einnig til útgerða skipa sem vinna uppsjávarfisk og skipa sem vinna fisk um borð á einhvern hátt þótt ekki sé um fullvinnslu að ræða. Fullvinnsla hefur verið skilgreind þannig að hún sé vinnsla þegar flökun eða flatning er þáttur í vinnslunni. Í þessu sambandi skal þess getið að lagt hefur verið fram frumvarp um breytingu á lögum um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum, sem gerir ráð fyrir að gildissvið laganna verði rýmkað á sambærilegan hátt. Erfitt er að meta hvort þessi rýmkaða greiðsluskylda útgerða vinnsluskipa auki tekjur Fiskistofu, fer það m.a. eftir því hvernig mannafla Fiskistofu er ráðstafað um borð í veiðiskip.
    Með frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðieftirlitsgjald fylgdi umsögn fjármálaráðuneytis um frumvarpið og kom þar fram að ráðuneytið gerði ekki ráð fyrir auknum kostnaði við veiðieftirlit þar sem notast yrði við núverandi mannafla Fiskistofu til að sinna eftirlitinu.