Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 449. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 644  —  449. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um samræmingu heilsugæslu, félagsþjónustu og öldrunarþjónustu.

Frá Ástu Möller.



    Telur ráðherra að flytja eigi félagsþjónustu, öldrunarþjónustu og heilsugæslu á eina hendi til sveitarfélaga í ljósi góðs árangurs af samræmingu þessara þjónustuþátta í reynslusveitarfélögunum Akureyri og Höfn í Hornafirði?