Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 477. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 782  —  477. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um flutning fjarvinnsluverkefna og starfa út á land.

Frá Kristjáni L. Möller.



    Hvaða fjarvinnsluverkefni og hversu mörg störf á vegum ráðuneytisins og stofnana og fyrirtækja sem heyra undir ráðuneytið voru flutt út á land árið 2002, sundurliðað eftir stöðum sem verkefnin og störfin voru flutt til? Enn fremur er óskað eftir skilgreiningu á umræddum störfum.


Skriflegt svar óskast.