Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 498. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 831  —  498. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um persónulegan talsmann fatlaðra.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Telur ráðherra tímabært að lögfesta þau réttindi að fötluðum sem ekki geta sjálfir gætt réttar síns verði skipaður persónulegur talsmaður til þess að annast réttindagæslu fyrir þá og tala máli þeirra þegar álitamál koma upp sem þá varða?