Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 531. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 875  —  531. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um niðurstöður starfshóps um samþættingu fjárlagagerðar og jafnréttis.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hverjar eru tillögur starfshóps sem starfað hefur á vegum fjármálaráðherra Norðurlandanna og falið var að gera tillögur um norrænt verkefni um samþættingu fjárlagagerðar og jafnréttis?
     2.      Hverjir áttu sæti í hópnum fyrir Íslands hönd?
     3.      Hvernig má gera ráð fyrir að farið verði með tillögur hópsins og hvernig verður háttað áframhaldandi vinnu við verkefnið?