Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 562. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 910  —  562. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um réttarstöðu fólks í hjúskap og óvígðri sambúð.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hefur ráðherra beitt sér fyrir kynningu á réttarstöðu fólks í hjúskap og óvígðri sambúð, sbr. ályktun Alþingis um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar frá 13. maí 1997? Ef svo er, hvernig hefur kynningarstarfsemi verið háttað?