Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 592. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 949  —  592. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um vinnu nefndar um stöðu óhefðbundinna lækninga.

Frá Láru Margréti Ragnarsdóttur.



    Er nefnd sem Alþingi fól heilbrigðisráðherra að skipa til að gera úttekt á stöðu óhefðbundinna lækninga tekin til starfa? Ef svo er, hvernig miðar vinnu nefndarinnar og hvenær er áætlað að henni ljúki?