Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 632. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1016  —  632. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um sérleyfi til fólksflutninga innan lands.

Frá Kristjáni L. Möller.



     1.      Hvaða sérleyfi til fólksflutninga voru endurnýjuð á síðasta ári og til hversu langs tíma?
     2.      Hvaða sérleyfi voru ekki endurnýjuð og hvers vegna?
     3.      Hvaða fjárstyrkir voru veittir til sérleyfishafa 2001 og 2002, hversu háir voru þeir og til aksturs hvaða sérleiða voru þeir veittir?


Skriflegt svar óskast.