Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 655. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1068  —  655. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um útgáfu ritverksins Saga Íslands.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



     1.      Hvað líður útgáfu ritverksins Saga Íslands sem samið er að tilhlutan þjóðhátíðarnefndar 1974?
     2.      Hver hefur framvinda verksins verið?
     3.      Hvenær er gert ráð fyrir að næsta bindi Sögu Íslands komi út og hver eru áætluð verklok útgáfunnar?
     4.      Hverjir sitja nú í ritstjórn verksins, hversu lengi hafa þeir setið þar og hvað hefur valdið þeirri töf sem orðið hefur á útgáfu Sögu Íslands?


Skriflegt svar óskast.