Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 669. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1297  —  669. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnheiði Snorradóttur og Jón Guðmundsson frá fjármálaráðuneytinu, Sigurberg Björnsson frá samgönguráðuneytinu og Árna Þór Sigurðsson frá Hafnasambandi sveitarfélaga.
    Með frumvarpinu eru lagðar til tvær aðskildar breytingar á lögunum. Í fyrsta lagi er lagt til að hafnir með hafnarstjórn í eigu sveitarfélags, eins og þær eru nánar skilgreindar í frumvarpi til hafnalaga sem nú liggur fyrir þinginu, verði virðisaukaskattsskyldar en það er ein meginforsenda þeirrar nýju skipanar hafnamála sem lögð er til í frumvarpinu. Í annan stað er lagt til að gildandi heimild samkvæmt ákvæði til bráðabirgða X í lögunum um virðisaukaskatt, sem fjallar um heimild til endurgreiðslu 2/ 3 hluta þess virðisaukaskatts sem greiddur er vegna kaupa eða leigu hópferðabifreiða á tímabilinu 1. september 2000 til 31. desember 2003, verði framlengd til 31. desember 2005.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Árni R. Árnason og Össur Skarphéðinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. mars 2003.



Einar K. Guðfinnsson,


form., frsm.


Kristinn H. Gunnarsson.


Gunnar Birgisson.



Hjálmar Árnason.


Adolf H. Berndsen.


Jóhann Ársælsson.