Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 171. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1307  —  171. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um framkvæmdaáætlun um aðgengi fyrir alla.

Frá félagsmálanefnd.



    Tillagan felur í sér að skipaður verði starfshópur með fulltrúum ráðuneytis félagsmála, menntamála, umhverfismála, heilbrigðis- og tryggingamála, dómsmála, samgöngumála og fjármála og fulltrúum frá hagsmunasamtökum fatlaðra til að semja framkvæmdaáætlun sem hefur að markmiði að tryggja aðgengi fyrir alla með hliðsjón af meginreglum Sameinuðu þjóðanna um þátttöku fatlaðra til jafns við aðra. Jafnframt geri starfshópurinn kostnaðaráætlun um verkefnið. Lagt er til að starfshópurinn leggi fram tillögur sínar fyrir 1. október 2003 og fulltrúi félagsmálaráðuneytisins verði formaður hans.
    Nefndin tekur undir markmið tillögunnar því að þótt ýmislegt hafi áunnist hér á landi í réttindamálum fatlaðra á undanförnum árum og áratugum má sjá að enn er mikið verk óunnið og því leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Guðrún Ögmundsdóttir og Kristján Pálsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. mars 2003.



Arnbjörg Sveinsdóttir,


form., frsm.


Pétur H. Blöndal.


Magnús Stefánsson.



Ásta R. Jóhannesdóttir.


Steingrímur J. Sigfússon.


Drífa Hjartardóttir.



Jónína Bjartmarz.