128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1427 — 661. mál.
Frumvarp til hafnalaga.
(Eftir 2. umr., 15. mars.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
2. gr.
Yfirstjórn.
3. gr.
Orðskýringar.
2. Hafnarmannvirki eru í lögum þessum varnargarðar, viðlegumannvirki og innsiglingar, leiðarmerki og skipalægi.
3. Skjólgarðar eru í lögum þessum varnarmannvirki sem ætlað er að veita viðlegumannvirkjum og innsiglingum skjól fyrir öldum, straumum og sandburði.
4. Viðlegumannvirki eru í lögum þessum bryggjur og önnur mannvirki innan hafnar sem ætluð eru til viðlegu fyrir fljótandi för.
5. Rekstur hafnar í lögum þessum táknar að byggja, reka, viðhalda og endurnýja hafnarmannvirki sem og rekstur hafntengdrar atvinnuaðstöðu, þ.e. leigu á landi, vöruhúsum, tækjum og þess háttar, upptökumannvirkjum hvers konar í því skyni að þjóna skipum eða fyrirtækjum á hafnarsvæðum sem sinna þjónustu við skip, farþega og farm, og jafnframt rekstur hafntengdrar þjónustu, þ.e. hafnsöguþjónustu, festarþjónustu, vigtarþjónustu, sorphirðu, sölu vatns og rafmagns og sambærilega þjónustu er lýtur að skipum. Undir rekstur hafna fellur einnig rekstur vöruhúsa og þjónustumiðstöðva á hafnarsvæðum.
6. Hafnarstjórn merkir í lögum þessum að sveitarfélög eða aðrir eigendur hafnar kjósi sérstaka hafnarstjórn og feli henni stjórnunarlega ábyrgð á höfninni.
7. Málaflokkur merkir í lögum þessum afmarkaða rekstrareiningu í bókhaldi sveitarfélags þar sem tekjum og gjöldum er haldið aðskildum frá öðrum rekstri þess.
4. gr.
Hafnarreglugerð.
1. Stærð og takmörk hafnarsvæðis á sjó og landi.
2. Starfsheimildir, starfsemi og umferð á hafnarsvæði.
3. Öryggi við flutninga og varnir gegn mengun.
4. Viðurlög við brotum.
5. Kosningu og starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.
Siglingastofnun hefur eftirlit með því að höfn uppfylli skyldur sínar samkvæmt hafnarreglugerð.
II. KAFLI
Skipulag hafnarsvæða og hafnarmannvirki.
5. gr.
Skipulag hafnarsvæðis og leyfi til mannvirkjagerðar.
Engin mannvirkjagerð má fara fram á hafnarsvæði nema með samþykki viðkomandi hafnarstjórnar. Ef leyfi til mannvirkjagerðar er eigi notað innan tveggja ára frá veitingu þess fellur það úr gildi.
6. gr.
Lágmarkskröfur um hafnarmannvirki,
slysavarnir og staðfesting á fjármögnun.
Ráðherra skal setja reglur um slysavarnir í höfnum.
7. gr.
Ábyrgð eiganda hafnarmannvirkja.
III. KAFLI
Rekstrarform og upplýsingaskylda hafna.
8. gr.
Rekstrarform hafna.
1. Höfn án sérstakrar hafnarstjórnar í eigu sveitarfélags.
2. Höfn með hafnarstjórn í eigu sveitarfélags.
3. Hlutafélag, hvort sem það er í eigu opinberra aðila eða ekki, einkahlutafélag, sameignarfélag eða sem einkaaðila í sjálfstæðum rekstri. Hafnir sem reknar eru samkvæmt þessum tölulið teljast ekki til opinbers rekstrar.
9. gr.
Upplýsingar um hafnir.
Höfn sem nýtur ríkisstyrks er skylt að senda endurskoðaða ársreikninga sína árlega til Siglingastofnunar sem og aðrar upplýsingar sem Siglingastofnun kann að óska eftir og snerta rekstur hafnarinnar. Öðrum höfnum er skylt að veita Siglingastofnun þær upplýsingar sem hún óskar eftir og snerta rekstur hafnanna, enda séu þær nauðsynlegar vegna eftirlitshlutverks Siglingastofnunar samkvæmt lögunum. Þá er höfn skylt að veita Siglingastofnun upplýsingar um farþega og vörumagn sem um höfnina fer.
IV. KAFLI
Höfn án sérstakrar hafnarstjórnar í eigu sveitarfélags.
10. gr.
Stjórnun, rekstur og starfsheimildir.
Hafnir samkvæmt þessum kafla hafa starfsheimildir í samræmi við 5. tölul. 3. gr.
11. gr.
Gjöld.
12. gr.
Breyting á rekstrarformi.
V. KAFLI
Höfn með hafnarstjórn í eigu sveitarfélags.
13. gr.
Stjórnun og rekstur.
Hafnarstjórn skal innan valdsviðs síns gæta hagsmuna hafnar. Hafnarstjórn ber ábyrgð gagnvart sveitarstjórn á rekstri og viðhaldi hafnar.
14. gr.
Hafnasamlög.
15. gr.
Starfsheimildir.
16. gr.
Skattskylda, rekstur og endurskoðun.
17. gr.
Gjöld.
1. Skipagjöld á skip þau og báta er nota viðkomandi höfn; bryggjugjöld og lestargjöld sem eru miðuð við stærð skipa, dvalartíma á hafnarsvæðinu og veitta aðstöðu. Gjald þetta skal standa undir kostnaði við að reka, viðhalda og endurnýja viðlegumannvirki, dýpkanir og legu í höfn.
2. Vörugjöld af vörum sem umskipað er, lestaðar eru eða losaðar í höfn, þar á meðal aflagjald sem er vörugjald af sjávarafla sem lagður er á land á hafnarsvæðinu. Gjald þetta skal standa undir kostnaði af aðstöðu við bryggju og á hafnarbakka.
3. Farþegagjald og gjald fyrir bifreiðar sem ekið er um borð eða frá borði í ferju til þess að standa straum af kostnaði við aðstöðu og búnað fyrir farþega og bíla.
4. Leigugjald fyrir svæði til lestunar og losunar á vöru.
5. Gjald fyrir geymslu vöru á hafnarsvæði til að standa straum af kostnaði við rekstur vöruaðstöðu.
6. Leigugjöld fyrir afnot af mannvirkjum eða tækjum hafnarinnar, þ.m.t. upptökumannvirkjum og löndunarkrönum. Gjaldið skal standa undir kostnaði við rekstur, viðhald og endurnýjun mannvirkjanna.
7. Leyfisgjöld fyrir bryggjur og önnur mannvirki sem gerð hafa verið skv. 5. gr. Gjaldið skal standa straum af undirbúningskostnaði veittra leyfa.
8. Lóðargjöld og lóðarleigu.
9. Hafnsögugjöld sem skulu standa straum af kostnaði við hafnsöguþjónustu.
10. Gjöld fyrir þjónustu dráttarbáta sem skulu standa straum af kostnaði við rekstur dráttarbáta.
11. Festargjöld sem nota skal til að greiða kostnað við festarþjónustu sem höfnin veitir.
12. Gjöld fyrir sölu á vatni og rafmagni.
13. Sorpgjöld sem skulu standa straum af kostnaði við sorphirðu frá skipum og fyrirtækjum á hafnarsvæði.
14. Vigtargjald sem standa skal straum af kostnaði við rekstur, viðhald og endurnýjun hafnarvogar.
15. Umsýslugjald til þess að standa straum af kostnaði vegna umsýslu og yfirstjórnar, t.d. launum og skrifstofukostnaði.
Gjaldtaka hafnar skal miðuð við að hún standi undir kostnaði við þá þjónustu sem veitt er.
Nú á annar aðili en hafnarsjóður viðlegumannvirki innan hafnarsvæðis og skal þá semja um hversu hátt gjald skal greiða til hafnar til þess að standa straum af sameiginlegum rekstri hennar.
Höfn er heimilt að gera langtímasamning við notendur um gjöld skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. fyrir afnot af bryggjum.
18. gr.
Breyting á rekstrarformi.
Höfn getur samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar orðið að höfn án sérstakrar hafnarstjórnar í eigu sveitarfélags, sbr. 1. tölul. 8. gr.
Rekstrarformi hafnar skal breytt í höfn í eigu sveitarfélags án sérstakrar hafnarstjórnar þegar hún hefur haft neikvæðan rekstrarafgang í þrjú ár í röð að teknu tilliti til vaxta, en fyrir afskriftir. Sveitarstjórn er þó heimilt með samþykki samgönguráðherra að veita aukið fjármagn til hafnar til þess að bæta eiginfjárstöðu hennar.
VI. KAFLI
Höfn sem telst ekki til opinbers reksturs.
19. gr.
Stjórn og rekstur.
20. gr.
Starfsheimildir og gjöld vegna reksturs hafnar.
Gjaldtaka hafnar samkvæmt þessum kafla skal miðuð við að hún standi undir kostnaði við þá þjónustu sem veitt er ásamt hlutdeild í sameiginlegum rekstri hafnarinnar. Notendur hafnar geta krafið hafnarstjórn upplýsinga um kostnað við þjónustu og eðlilega sundurliðun gjalda.
VII. KAFLI
Móttökuskylda hafnar.
21. gr.
Móttökuskylda og ábyrgð eigenda skipa.
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðskuldum. Höfn er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu hafnargjalda og fyrir förgunarkostnaði skips séu taldar verulegar líkur á að það lendi í reiðileysi innan hafnar. Höfn er heimilt að láta fjarlægja skip á kostnað eiganda þegar rými hafnarinnar er takmarkað. Ef skip, bátar, flutningatæki á landi eða annar búnaður er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og veldur óþrifnaði eða hættu getur hafnarstjóri fyrirskipað úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt er heimilt að láta fjarlægja viðkomandi hlut á kostnað eiganda.
VIII. KAFLI
Framlög ríkisins til hafnamála og framkvæmdir í höfnum.
22. gr.
Frumrannsóknir.
23. gr.
Samgönguáætlun.
Við undirbúning þessarar tillögugerðar ber Siglingastofnun að hafa samráð og samstarf við viðkomandi hafnarstjórn og hafnaráð.
Við tillögugerðina og forgangsröðun framkvæmda skal leggja til grundvallar mat er taki mið af hagkvæmni framkvæmdar, þörf fyrir hana og þýðingu fyrir byggðarlagið.
24. gr.
Ríkisstyrktar framkvæmdir.
Ríkissjóði er heimilt að styrkja:
a. Endurbyggingu, endurbætur og lagfæringar á skjólgörðum í höfnum þar sem erfiðar náttúrulegar aðstæður valda því að lítið skjól er fyrir úthafsöldu og dýpkun í innsiglingu þar sem reglulegrar viðhaldsdýpkunar er þörf á minnst fimm ára fresti. Stofnkostnað við hafnsögubáta á stöðum þar sem aðstæður í höfn og nágrenni hennar kalla á slíkt öryggistæki. Greiðsluþátttaka ríkisins getur þó aldrei orðið hærri en 75% og er ákvörðuð hverju sinni í samgönguáætlun.
b. Framkvæmdir á vegum lítils hafnarsjóðs innan skilgreinds byggðasvæðis samkvæmt ákvörðunum Eftirlitsstofnunar EFTA með tekjur undir 20 millj. kr. og þar sem verðmæti meðalafla síðustu þriggja ára er undir 600 millj. kr. Ríkissjóði er heimilt að víkja frá þessum viðmiðunarmörkum við sérstakar aðstæður, m.a. þegar aflaverðmæti viðkomandi hafnar gefur sannanlega ekki rétta mynd af eðlilegum tekjum hennar miðað við aðrar hafnir. Ríkisstyrktar framkvæmdir skulu takmarkast við merkingu innsiglingar, dýpi, varnarmannvirki og viðlegu. Greiðsluþátttaka ríkisins samkvæmt þessum lið skal vera allt að 90% og er ákvörðuð hverju sinni í samgönguáætlun sem samþykkt er af Alþingi.
c. Framkvæmdir á vegum hafnarsjóðs innan skilgreinds byggðasvæðis samkvæmt ákvörðunum Eftirlitsstofnunar EFTA með heildartekjur undir 40 millj. kr. og þar sem verðmæti meðalafla síðustu þriggja ára er undir 1.500 millj. kr. og vöruflutningar sem um höfnina fara eru undir 50 þús. tonnum. Ríkissjóði er heimilt að víkja frá þessum viðmiðunarmörkum við sérstakar aðstæður, enda liggi fyrir staðfesting frá Samkeppnisstofnun um að styrkurinn skekki ekki samkeppnisstöðu hafna. Greiðsluþátttaka ríkisins samkvæmt þessum lið getur aldrei orðið meiri en 60% vegna dýpkana og 40% vegna viðlegumannvirkja sem unnið er við árið 2007 eða síðar.
Samgönguráðherra er heimilt í stað þess að veita styrki skv. a–c-lið 2. mgr. að stofna þróunardeild Hafnabótasjóðs, sbr. 26. gr., sem yrði fjármögnuð með framlagi af fjárlögum samkvæmt ákvörðun Alþingis. Þróunardeild Hafnabótasjóðs er heimilt að veita styrki til hafnarsjóða óháð rekstrarformi vegna framkvæmda við dýpkanir, skjólgarða, viðlegumannvirki og merkingu innsiglingar sem nema allt að 50% kostnaðar. Þó geta litlar byggðahafnir, sbr. b-lið 2. mgr., sótt um styrk sem nemur allt að 90% kostnaðar við framkvæmdir. Hafnir skulu senda inn umsóknir um styrki þar sem lögð er fram viðskiptaáætlun hafnar, upplýsingar um viðkomandi framkvæmdir, fjármögnun framkvæmda og aðrar þær upplýsingar sem stjórn sjóðsins ákveður að leggja skuli fram. Ákveði ráðherra að nýta þetta ákvæði er ekki skylt að sundurliða framkvæmdir í samgönguáætlun.
25. gr.
Umsóknir um ríkisframlög.
Við mat á greiðsluþátttöku ríkissjóðs í einstökum verkefnum skal ávallt tekið tillit til fjárhagslegrar getu hafnarsjóðs til að standa undir nauðsynlegum hafnarframkvæmdum, þó með þeim takmörkunum um hámark sem kveðið er á um í 24. gr. Staðfesting Siglingastofnunar skal liggja fyrir um að höfn hafi nýtt alla kosti sína til tekjuöflunar áður en umsókn um ríkisstyrk er tekin fyrir svo að framlagið raski ekki samkeppni við aðrar hafnir. Staðfesting þessi skal m.a. byggjast á samanburði við gjaldtöku annarra sambærilegra hafna.
Greiðsluþátttaka ríkissjóðs í einstökum verkefnum skal ákveðin um leið og verk eru sett á samgönguáætlun og tekin til endurskoðunar á tveggja ára fresti við endurskoðun samgönguáætlunar, sbr. 23. gr.
26. gr.
Hafnabótasjóður.
Tekjur Hafnabótasjóðs eru tekjur af starfsemi sjóðsins og framlag úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni.
Hafnabótasjóði er heimilt að taka lán vegna starfsemi sinnar samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni. Hafnaráð ráðstafar fé Hafnabótasjóðs að fengnum tillögum Siglingastofnunar Íslands með samþykki ráðherra á eftirgreindan hátt:
1. Fjármagnar framkvæmdir ríkisins samkvæmt samgönguáætlun sem samþykkt hefur verið á Alþingi.
2. Hafnabótasjóði er heimilt að starfrækja þróunardeild hafna samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur að fengnu sérstöku fjárframlagi samkvæmt samþykkt Alþingis. Markmið þróunardeildarinnar er að styðja minni hafnir á landsbyggðinni sem eru mikilvægar fyrir byggðarlagið og atvinnuuppbyggingu þess.
3. Hafnabótasjóði er heimilt að bæta tjón á hafnarmannvirkjum sem eru styrkhæf skv. a-lið og b-lið 2. mgr. 24. gr., þ.m.t. tjón sem ekki fæst að fullu bætt úr Viðlagasjóði eða vegna ákvæða IX. kafla siglingalaga um takmarkaða ábyrgð útgerðarmanna.
Siglingastofnun Íslands annast vörslu, daglega afgreiðslu og bókhald Hafnabótasjóðs. Lánasýsla ríkisins veitir sjóðnum aðstoð við öflun lánsfjár.
Heimilt er með samþykki ráðherra að fela lánastofnun umsýslu lána sjóðsins.
IX. KAFLI
Kæruheimild.
27. gr.
Kæruheimild.
Ákvörðunum Siglingastofnunar samkvæmt lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim má skjóta til samgönguráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.
X. KAFLI
Viðurlög, gildistaka o.fl.
28. gr.
Refsingar.
29. gr.
Breytingar á verðlagi.
30. gr.
Gildistaka o.fl.
Allar hafnir skulu leitast við að taka ákvörðun um rekstrarform fyrir 1. júlí 2003, en þá taka ný rekstrarform hafna samkvæmt lögum þessum gildi.
Sé engin ákvörðun tekin um rekstrarform hafnar fyrir 1. júlí 2003 skal rekstrarform hennar vera höfn með hafnarstjórn í eigu sveitarfélags. Við breytingu núverandi hafnarforms frá höfn með hafnarstjórn í höfn án sérstakrar hafnarstjórnar í eigu sveitarfélags skal sveitarstjórn taka við stjórn hafnarinnar og ábyrgð á rekstri hennar.
B-deild Hafnabótasjóðs skv. 26. gr. skal yfirtaka núverandi eignir sjóðsins við gildistöku laganna.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Gjaldskrá.
II.
Ríkisstyrkir.
Þrátt fyrir ákvæði 26. gr. er Hafnabótasjóði heimilt að veita lán eða styrk skv. 3. tölul. 1. mgr. 28. gr. laga nr. 23/1994 fram til 1. janúar 2007.
III.
Sérstakt vörugjald.
IV.
Endurskoðunarnefnd.