Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 42. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 42  —  42. mál.




Frumvarp til laga



um bótarétt höfunda og heimildarmanna.

Flm.: Bryndís Hlöðversdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,


Guðrún Ögmundsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Össur Skarphéðinsson.


1. gr.

    Starfsmaður ríkis eða sveitarfélags sem rýfur þagnarskyldu með því að greina frá upplýsingum sem varða ríka hagsmuni og telja verður að eigi erindi til almennings á rétt til bóta úr hendi vinnuveitanda fyrir tjón sem hann verður fyrir vegna uppsagnar, missis réttinda eða annarra aðgerða af hálfu vinnuveitanda enda þyki sýnt að aðgerðir vinnuveitanda séu viðbrögð við rofi á þagnarskyldu. Sama á við um starfsmenn annarra fyrirtækja, félaga eða stofnana, hvernig sem eignarhaldi þeirra er háttað.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum til verndar trúnaðarsambandi fjölmiðlamanna og heimildarmanna þeirra og til verndar starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga vegna upplýsingagjafar í þágu almannaheilla. Hér er lagt til að starfsmönnum ríkis og sveitarfélaga, sem og starfsmönnum fyrirtækja, félaga og stofnana óháð eignarhaldi, þ.e. hvort sem þau eru almenningshlutafélög, í eigu ríkisins að hluta eða öllu leyti eða annarra fyrirtækja, verði tryggðar bætur bíði þeir tjón af því að láta fjölmiðlum í té upplýsingar eða koma á framfæri með skrifum eða öðrum flutningi efni, upplýsingum, mynd eða verki sem varðar ríka hagsmuni og erindi á til almennings.
    Tilgangur frumvarpsins er að tryggja bótagrundvöll jafnvel þótt sýnt hafi verið fram á að upplýsingagjöf feli í sér brot á þagnarskyldu. Um nánari skilyrði bótaréttar og mat á bótafjárhæðum fer samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar.