Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 51. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 51  —  51. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um stuðning við byggð og búsetu í Árneshreppi á Ströndum.

Frá Jóni Bjarnasyni.



    Hvað líður skipan og störfum nefndar sem ríkisstjórninni var falið að setja á stofn samkvæmt þingsályktun sem Alþingi samþykkti 15. mars sl., en nefndinni var ætlað að gera tillögur „um aðgerðir til verndunar búsetu og menningarlandslags í Árneshreppi í Strandasýslu“?