Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 72. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 72  —  72. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hvað er fram undan í uppbyggingu hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu, hversu mörg hjúkrunarrúm bætast við á þessu ári og því næsta? Hver er raunfjölgunin þegar þau verða komin í gagnið?
     2.      Hve mikið fjölgaði hjúkrunarrýmum í raun á síðasta kjörtímabili?
     3.      Hversu margir bíða nú eftir hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu?