Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 74. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 74  —  74. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um áhrif hvalveiða á ferðaþjónustu hér á landi.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hefur ráðherra látið kanna hvaða áhrif hvalveiðar okkar hafa haft á ferðaþjónustu hér á landi eða hver áætluð áhrif þeirra verði á hana?
     2.      Áformar ráðherra að bregðast við neikvæðum áhrifum veiðanna á atvinnugreinina með kynningarátaki eða á annan hátt?