Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 81. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 81  —  81. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um óhefðbundnar lækningar.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hvað líður störfum nefndar sem ráðherra skipaði um óhefðbundnar lækningar? Hvaða verkefni hefur hún tekið fyrir? Hvenær má vænta niðurstöðu nefndarinnar?