Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 92. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 92  —  92. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um breytingar á landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



    Hverjar eru helstu breytingar sem samþykktar hafa verið á landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins? Hvernig falla þessar breytingar að íslenskum hagsmunum?