Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 113. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 113  —  113. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um kostnað sveitarfélaga vegna atvinnuleysis.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hafa verið teknar saman upplýsingar um beinan og óbeinan kostnað sveitarfélaga vegna atvinnuleysis, þ.m.t. kostnað við atvinnuskapandi aðgerðir og aukna félagslega aðstoð í kjölfar atvinnuleysis? Ef svo er, hver var niðurstaða þeirrar samantektar? Ef svo er ekki, mun ráðherra beita sér fyrir því að þessar upplýsingar verði teknar saman?