Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 117. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 117  —  117. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um vátryggingarsamninga og Viðlagatryggingu Íslands.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hefur verið unnið að endurskoðun laga um vátryggingarsamninga, nr. 20/1954, með síðari breytingum, og laga um Viðlagatryggingu Íslands, nr. 55/1992, með síðari breytingum? Ef svo er, hver var niðurstaða þeirrar endurskoðunar? Ef ekki, mun ráðherra þá beita sér fyrir heildarendurskoðun þessara laga?