Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 120. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 120  —  120. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um Íþróttamiðstöð Íslands að Laugarvatni.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hvað hefur verið gert til að fylgja eftir niðurstöðum og tillögum sem fram komu í skýrslu starfshóps um eflingu Íþróttamiðstöðvar Íslands að Laugarvatni?
     2.      Hefur verið tekin ákvörðun um endurbætur á gamla héraðsskólahúsinu og nýtingu þess? Ef svo er, hvað var ákveðið og hvenær má vænta þess að ráðist verði í framkvæmdir?