Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 190. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 212  —  190. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um söfnunarkassa og happdrættisvélar.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hverjar voru brúttótekjur Íslenskra söfnunarkassa sf. og Happdrættis Háskóla Íslands af söfnunarkössum og happdrættisvélum árin 2000, 2001 og 2002?
     2.      Hver voru heildarrekstrargjöld hvors fyrirtækis á þessum árum?
     3.      Hverjar voru heildarvinningsfjárhæðir hvors fyrirtækis sömu ár?


    Ráðuneytið leitaði eftir upplýsingum frá Íslandsspili (áður Íslenskir söfnunarkassar) og Happdrætti Háskóla Íslands vegna fyrirspurnarinnar. Byggjast meðfylgjandi tölur á þeim upplýsingum. Vakin er athygli á að þeir peningar sem spilað er fyrir í vélunum/kössunum og eru greiddir út á staðnum, þ.e. úr vélunum/kössunum, eru ekki innleystir sem tekjur í bókhaldi, né eru vinningar gjaldfærðir. Því er ekki unnt að veita svar við 3. lið fyrirspurnarinnar, um heildarvinningsfjárhæðir, nema hvað varðar greiðslu úr gull- og silfurpottum Gullnámu Happdrættis Háskóla Íslands. Að því er varðar Happdrætti Háskóla Íslands taka upplýsingarnar einungis til þess hluta starfsemi happdrættisins sem lýtur að rekstri happdrættisvéla.

Íslandsspil HHÍ
Kr. Kr.
1. Tekjur
2000 1.289.258.385 962.355.135
2001 1.302.900.067 1.201.841.617
2002 1.360.528.631 1.236.604.000
2. Heildarrekstrargjöld
2000 356.855.197 382.639.847
2001 379.436.327 475.143.677
2002 415.988.647 505.940.318
3. Vinningar
2000 166.051.818
2001 274.689.986
2002 279.974.862