Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 212. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 225  —  212. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um þátttöku sveitarstjórnarmanna í Evrópusamstarfi.

Frá Einari Karli Haraldssyni.



    Hvað hyggst utanríkisráðherra gera til þess að tryggja íslenskum sveitarstjórnum aðgang að síauknu samstarfi sveitarstjórnarmanna innan Evrópusambandsins með hliðsjón af því að um 70% gerða Evrópusambandsins, sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu, snerta verkefni sveitarfélaga með einum eða öðrum hætti?