Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 219. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 232  —  219. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um úthlutun fjár til kynningar- og markaðsmála í ferðaþjónustu.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Hvernig hyggst ráðherra úthluta þeim 320 millj. kr. sem ætlaðar eru til markaðs- og kynningarmála í ferðaþjónustu í fjárlögum fyrir árið 2004? Verða gerðar breytingar frá úthlutunarreglum fyrra árs og ef svo er, þá hverjar?