Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 221. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 234  —  221. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um farsímakerfið.

Frá Árna Steinari Jóhannssyni.



     1.      Hversu margar GSM-stöðvar hefur Landssíminn sett upp til að þétta farsímakerfið sl. fjögur ár?
     2.      Hver eru áform Landssímans um uppsetningu farsímastöðva næstu tvö árin?
     3.      Hvenær má búast við að GSM-samband náist alls staðar á þjóðvegi 1?