Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 289. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 334  —  289. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um lífeyrisréttindi maka flutningsskyldra starfsmanna í utanríkisþjónustunni.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hefur starfshópur ráðherra sem fjalla átti um lífeyrisréttindi maka flutningsskyldra starfsmanna í utanríkisþjónustunni lokið störfum? Ef svo er, hverjar voru tillögur starfshópsins og hvað hefur verið gert til þess að bæta réttindi þessa fólks?