Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 299. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 344  —  299. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um starfslokasamninga sl. 10 ár.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir á ári undanfarin 10 ár við yfirmenn stofnana á vegum hins opinbera og starfsmenn í stjórnunarstöðum hjá hinu opinbera, sundurliðað eftir kynjum?
     2.      Hversu mikið kostuðu þessir starfslokasamningar hver og einn?
     3.      Hversu mikið hafa þeir kostað undanfarin 10 ár, sundurliðað eftir árum og kynjum?


Skriflegt svar óskast.