Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 347. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 421  —  347. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um upplýsingar um starfskjör á fjármálamarkaði.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Er þess að vænta að Fjármálaeftirlitið setji reglur um upplýsingaskyldu um starfskjör stjórnenda á fjármálamarkaði sambærilegar þeim sem Kauphöll Íslands hefur sett fyrir kauphallarskráð félög?
     2.      Ef svo er, hvenær er að vænta slíkra reglna, hvert verður inntak þeirra, til hverra munu þær ná og hvernig verða þær kynntar almenningi?