Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 363. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 482  —  363. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um gangagerð og safnvegaframkvæmdir.

Frá Önundi S. Björnssyni.



     1.      Hvenær mun gangagerð í gegnum Almannaskarð hefjast, sbr. þingsályktun um samgönguáætlun frá 13. mars 2003, og hvenær er fyrirhugað að opna göngin?
     2.      Hyggst ríkisstjórnin auka fjárveitingar til framkvæmda við safnvegi til sögufrægra staða sem búa við vegleysur og ef svo er, hvenær?