Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 396. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 532  —  396. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um beint millilandaflug frá Akureyri.

Frá Hlyni Hallssyni.



     1.      Hyggjast stjórnvöld kanna leiðir til að stuðla að beinu millilandaflugi frá Akureyri í ljósi þess að flugfélagið Grænlandsflug er að hætta slíku flugi?
     2.      Er ráðherra tilbúinn til að beita sér fyrir opinberum styrkjum til markaðssetningar á slíku flugi í því skyni að efla ferðaþjónustu á landsbyggðinni ef áhugasamir aðilar finnast til að sjá um flugreksturinn?