Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 414. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 569  —  414. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um öryggi vegfarenda á Kleifaheiði.

Frá Guðjóni A. Kristjánssyni.



     1.      Hvað líður lagfæringum á veginum yfir Kleifaheiði til að auka öryggi vegfarenda?
     2.      Hefur verið samið um að setja vegrið á heiðinni og ef svo er, hvenær verður það gert?