Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 469. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 677  —  469. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um seli.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



     1.      Hvaða skuldbindingar hafa Íslendingar samkvæmt alþjóðlegum samningum varðandi verndun sela við Ísland?
     2.      Telur ráðherra að aðgerðir stjórnvalda til eyðingar selum samræmist framangreindum skuldbindingum miðað við stöðu og þróun selastofna hér við land?