Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 709, 130. löggjafarþing 306. mál: breyting á ýmsum lögum á orkusviði.
Lög nr. 135 19. desember 2003.
Breyting á orkulögum, nr. 58 29. apríl 1967, með síðari breytingum.
Þó skulu aðilar skv. 1. mgr. greiða til sveitarfélaga þau opinber gjöld sem gert er að greiða af fasteignum í eigu þeirra samkvæmt öðrum lagafyrirmælum.
Breyting á lögum um stofnun hlutafélags um Hitaveitu Suðurnesja, nr. 10 19. mars 2001, með síðari breytingum.
Breyting á lögum um stofnun hlutafélags um Norðurorku, nr. 159 20. desember 2002, með síðari breytingum.
Breyting á lögum um stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða, nr. 40 30. maí 2001, með síðari breytingum.
Breyting á lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, nr. 139 21. desember 2001, með síðari breytingum.
Þingskjal 709, 130. löggjafarþing 306. mál: breyting á ýmsum lögum á orkusviði.
Lög nr. 135 19. desember 2003.
Lög um breytingu á ýmsum lögum á orkusviði.
1. gr.
Við 80. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Þó skulu aðilar skv. 1. mgr. greiða til sveitarfélaga þau opinber gjöld sem gert er að greiða af fasteignum í eigu þeirra samkvæmt öðrum lagafyrirmælum.
2. gr.
Við 14. gr. laganna bætist nýr málsliður er verður 2. málsl., svohljóðandi: Þó skal Hitaveita Suðurnesja hf. greiða til sveitarfélaga þau opinber gjöld sem gert er að greiða af fasteignum félagsins samkvæmt öðrum lagafyrirmælum.3. gr.
Við 1. mgr. 9. gr. laganna bætist nýr málsliður er verður 2. málsl., svohljóðandi: Þó skal Norðurorka hf. greiða til sveitarfélaga þau opinber gjöld sem gert er að greiða af fasteignum félagsins samkvæmt öðrum lagafyrirmælum.4. gr.
Við 12. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skal Orkubú Vestfjarða hf. greiða til sveitarfélaga þau opinber gjöld sem gert er að greiða af fasteignum félagsins samkvæmt öðrum lagafyrirmælum.5. gr.
Við 10. gr. laganna bætist nýr málsliður er verður 2. málsl., svohljóðandi: Þó skal Orkuveita Reykjavíkur greiða til sveitarfélaga þau opinber gjöld sem gert er að greiða af fasteignum fyrirtækisins samkvæmt öðrum lagafyrirmælum.6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 13. desember 2003.