Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 497. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 769  —  497. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um opnun Þjóðminjasafns Íslands.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Verður Þjóðminjasafn Íslands opnað að nýju sumardaginn fyrsta eins og síðast var fyrirhugað? Ef ekki, hvenær ársins verður það opnað að nýju?
     2.      Telur ráðherra að veita þurfi safninu fé til opnunarinnar umfram það sem gert var ráð fyrir?