Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 511. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 783  —  511. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um kostnað við útgáfu rita um sögu stjórnarráðsins 1964–2004.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hver er áætlaður kostnaður við útgáfu Sögu stjórnarráðsins 1964–2004? Hversu mikill kostnaður er þegar til fallinn?
     2.      Hvernig skiptist þessi kostnaður (laun hvers höfundar, laun ritstjóra, þóknun ritnefndar, laun annarra starfsmanna við útgáfuna, kostnaður vegna mynda, umbrotskostnaður, prentsmiðjukostnaður, kynningarkostnaður, annar kostnaður og þá hver)?
     3.      Hvernig er verktöku Sögufélagsins við útgáfuna háttað?