Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 523. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 798  —  523. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um fjárveitingar til rannsóknastofnana.

Frá Ásgeiri Friðgeirssyni.



    Hversu mikið fé var veitt úr opinberum sjóðum á vegum landbúnaðarráðuneytis til vísinda, rannsókna og þróunarstarfs eftirtalinna stofnana árin 2001, 2002 og 2003 og úr hvaða sjóðum rann féð, hver ákvað fjárveitingarnar og á hvaða forsendum:
    Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Keldnaholti,
    Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri,
    Hólaskóla,
    Garðyrkjuskóla ríkisins,
    Landgræðslu ríkisins,
    Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá,
    Veiðimálastofnunar,
    embættis yfirdýralæknis?


Skriflegt svar óskast.