Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 536. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 811  —  536. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um bið eftir heyrnartækjum.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hversu margir bíða nú eftir heyrnartækjum, hve löng er biðin og hvað kostar að eyða biðlistum?
     2.      Hversu margir leituðu til einkaaðila á síðasta ári vegna kaupa á heyrnartækjum og hve langur er biðlistinn þar?
     3.      Hver er kostnaður einstaklinga við kaup á heyrnartækjum annars vegar hjá Heyrnar- og talmeinastöðinni og hins vegar hjá einkaaðilum?