Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 528. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 884  —  528. mál.




Svar



utanríkisráðherra við fyrirspurn Ásgeirs Friðgeirssonar um fjárveitingar til rannsóknastofnana.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu mikið fé var veitt úr opinberum sjóðum á vegum utanríkisráðuneytis til vísinda, rannsókna og þróunarstarfs Jarðhitaskóla og Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna árin 2001, 2002 og 2003 og úr hvaða sjóðum rann féð, hver ákvað fjárveitingarnar og á hvaða forsendum?

    Á vegum utanríkisráðuneytisins eru engir opinberir sjóðir sem veita fé til vísinda, rannsókna og þróunarstarfs. Jarðhitaskóli og Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna eru á fjárlögum. Framlög í fjárlögum til skólanna árin 2001–2003 voru eftirfarandi (í millj. kr.):

2001 2002 2003
Jarðhitaskólinn 51,8 63,0 67,4
Sjávarútvegsskólinn 36,1 48,9 54,6