Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 592. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 891  —  592. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um háhraðatengingar.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hvaða sveitarfélög á landinu hafa háhraðatengingar og hver ekki?
     2.      Hver er íbúafjöldi þeirra sveitarfélaga sem ekki hafa háhraðatengingar, sundurgreint eftir sveitarfélögum?


Skriflegt svar óskast.