Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 661. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 990  —  661. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðar- og viðskiptaráðherra um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur, Helga Hjörvar og Valdimar L. Friðrikssyni.



    Hvernig hefur iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið hrundið í framkvæmd aðgerðum til að ná fram jafnrétti kynjanna, sbr. 7. tölul. III. kafla þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 1998? Óskað er eftir að gerð verði grein fyrir hverju verkefni fyrir sig og hve miklu fé hefur verið varið til aðgerðanna.


Skriflegt svar óskast.