Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 724. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1077  —  724. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um varnarliðið á Keflavíkurflugvelli.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Hversu margir hermenn eru nú á vegum Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli og hversu margir voru þeir á árunum 1990–2003, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margir almennir borgarar, þ.e. ekki hermenn, dvelja nú á Keflavíkurflugvelli á vegum Bandaríkjahers og hversu margir voru þeir á árunum 1990–2003, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hversu margir Íslendingar starfa nú hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli og hversu margir voru þeir á árunum 1990–2003, sundurliðað eftir árum?
     4.      Er ráðherra kunnugt um áætlanir um fjölda hermanna, almennra bandarískra borgara og íslenskra starfsmanna á næstu þremur árum?


Skriflegt svar óskast.