Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 796. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1211  —  796. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um bólgueyðandi lyf.

Frá Dagnýju Jónsdóttur.



     1.      Hvernig hefur lyfjakostnaður sjúkratrygginga vegna bólgueyðandi lyfja þróast frá upphafi árs 1999?
     2.      Hvaða tegundum bólgueyðandi lyfja hefur mest verið ávísað hérlendis á þessu tímabili? Svarið óskast sundurliðað eftir hlutdeild einstakra lyfjaheita frá ári til árs.
     3.      Hefur kostnaður sjúkratrygginga vegna bólgueyðandi lyfja þróast öðruvísi hérlendis en annars staðar á Norðurlöndum? Ef svo er, hvernig stendur á því?


Skriflegt svar óskast.